Hvernig er gert við eitt stærsta og þyngsta steinskífuþak á landinu? Hvernig ber maður sig að þegar engar upprunalegar teikningar af þakinu er að styðjast við? Hvernig er nákvæmum frágangi á flóknum deilum háttað?
Þriðjudaginn 26. nóvember mun Snædís Traustadóttir húsasmíðameistari og nemi í hefðbundnu byggingarhandverki við NTNU í Noregi segja okkur frá þakviðgerðinni sem hún hefur fengist við sl. mánuði á Landakotskirkju í Reykjavík.
Landakotskirkja var reist á árunum 1925-1929 eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar. Kirkjan er friðlýst og því að mörgu að huga er varðar viðhald, viðgerðir og varðveislu.
Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Íslandsdeildar ICOMOS í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands og hefst kl 12.00. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.
Hægt er að fylgjast með fyrirlestrinum í streymi hér
Hlekkur á Facebook viðburð hér