Skip to main content

Aðalfundur Icomos

By mars 6, 2025Fréttir

Aðalfund Íslandsdeildar ICOMOS verður haldinn miðvikudaginn 27. mars, kl. 12.00 í Sjóminjasafninu. Hádegishressing verður í boði.

Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:


1.      Venjuleg aðalfundarstörf í samræmi við 17. gr. samþykkta Íslandsdeildar ICOMOS.

a.      Skýrsla stjórnar um starfsemi deildarinnar fyrir árið 2024.

b.     Reikningar deildarinnar fyrir árið 2024 bornir upp til samþykktar.

c.      Fjárhags- og starfsáætlun fyrir árið 2025.

d.      Stjórnarkjör.

e.      Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga.

f.      Kynning á starfshópum Icomos.


2. Önnur mál.


Á aðalfundum skal einnig ákveða hverjir fari með atkvæði Íslandsdeildar ICOMOS á aðalfundi ICOMOS.

F.h. stjórnar

Alma Sigurðardóttir, formaður